Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 10. desember 2018 17:30
Magnús Már Einarsson
Ársmiðar á landsleiki Íslands í sölu á morgun
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Sala ársmiða á alla heimaleiki Íslands í undankeppni EM 2020 hefst á morgun á Tix.is. Ársmiðahafar fá kort með nafninu sínu og upplýsingum um sæti.

Kortin verða einnig með strikamerki og gildir kortið því sem aðgöngumiði á alla fimm leikina í undankeppninni.

Ársmiðarnir verða afhentir í gjafaöskju og eru tilvalin jólagjöf fyrir allt knattspyrnuáhugafólk.

Hægt er að kaupa 4 ársmiða í hverri pöntun og í boði eru sæti á öllum verðsvæðum. Með því að kaupa ársmiða færðu 20% afslátt af almennu miðaverði.

Í svæði 1 kosta ársmiðarnir 14 þúsund, í svæði 2 kosta þeir 22 þúsund og í svæði 3 kosta þeir 30 þúsund.

Heimaleikir Íslands
Laugardagur 8. júní Ísland - Albanía (13:00)
Þriðjudagur 11. júní Ísland - Tyrkland (18:45)
Laugardagur 7. september Ísland - Moldavía (16:00)
Föstudagur 11. október Ísland - Frakkland (18:45)
Mánudagur 14. október Ísland - Andorra (18:45)
Athugasemdir
banner
banner
banner