Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 06. desember 2021 22:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gray: Besta augnablikið hingað til með Everton
Mynd: Getty Images
Demarai Gray tryggði Everton sigur gegn Arsenal í kvöld með glæsilegu marki.

Hann var til viðtals hjá Sky Sports eftir leikinn þar sem hann sagði að þetta væri hans besta augnablik hjá Everton.

„Þetta var brjálað augnablik, mitt besta hér hingað til. Þetta var mikilvægur sigur. Þetta hefur verið erfitt að undanförnu en við höfum farið saman í gegnum það, við erum með reynslumikinn hóp og með svona stuðningsmenn sem styðja við okkur allan tíman þá áttum við þetta skilið."

Liðið hafði ekki unnið 8 leiki í röð þegar kom að leiknum í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner