07.01.15 - 20:31
Ívan Guðjón Baldursson
Kramaric til Leicester (Staðfest)

Kramaric hefur skorað 2 mörk í 4 landsleikjum fyrir Króatíu.

Mynd: Getty Images

Króatíska félagið NK Rijeka er búið að staðfesta sölu Andrej Kramaric til Leicester City.
Kramaric er 23 ára sóknarmaður frá Króatíu sem hefur verið iðinn við markaskorun á tímabilinu en bæði Juventus og Chelsea reyndu að fá hann til liðs við sig.

Sóknarmaðurinn vildi ekki fara til stórliðs og vera varaskeifa þannig að hann ákvað að velja fallbaráttulið Leicester framyfir stórliðin.
,,Andrej Kramaric er búinn að skrifa undir samning við Leicester City! Við óskum þér alls hins besta á ferlinum. Takk fyrir ógleymanlegar stundir hjá Rijeka,\" stendur í yfirlýsingu frá króatíska félaginu á Twitter.
Kramaric skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning til 2018 og kemur fyrir tæpar 10 milljónir punda og er því dýrasti leikmaður í sögu félagsins.
Króatinn á þó eftir að fá atvinnuleyfi í Bretlandi en það ætti ekki að vera mikið mál.