07.01.15 - 12:40
Magnús Már Einarsson
Steven Gerrard fer til LA Galaxy (Staðfest)

Gerrard er á leið í MLS deildina.

Mynd: Getty Images

Gerrard er á leið í MLS deildina.

Mynd: Getty Images
Steven Gerrard mun ganga til liðs við Los Angeles Galaxy í sumar en þetta var staðfest í dag.
Gerrard gengur í raðir LA Galaxy í júlí þegar samningur hans hjá Liverpool klárast.
Gerrard greindi frá því í síðustu viku að hann hefði ákveðið að yfirgefa uppeldisfélag sitt Liverpool en í kjölfarið var hann strax orðaður við félög í Bandaríkjunum.

,,Ég ákvað að velja LA Galaxy út af velgengni liðsins nýlega,\" sagði Gerrard.
Gerrard hefur spilað með aðalliði Liverpool frá árinu 1998 og hann hefur verið fyrirliði liðsins frá 2003.