Fotbolti.net
07.01.25 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Landsliðshópur U17: Undirbúa sig fyrir seinni umferðina

Landsliðshópur U17: Undirbúa sig fyrir seinni umferðina
Canon

Mynd: KSÍ

Hertz
Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U17 landsliðs kvenna hefur valið leikmannahóp fyrir æfingamót sem fer fram í Portúgal í lok janúar.
Þar munu 20 af bestu fótboltastelpum landsins spila fyrir Íslands hönd í sterku æfingamóti sem partur af undirbúningi fyrir seinni umferð undankeppni EM 2025.

Ísland er þar í riðli með Spáni, Belgíu og Úkraínu og þarf honum að ljúka fyrir 23. mars.

Í landsliðshópnum fyrir æfingamótið má finna fjóra leikmenn úr röðum FH og þrjá sem koma frá Val. Grótta og Tindastóll eiga tvo fulltrúa hvort.

Landsliðshópurinn:
Edith Kristín Kristjánsdóttir - Breiðablik
Anna Heiða Óskarsdóttir - FH
Thelma Karen Pálmadóttir - FH
Hrönn Haraldsdóttir - FH
Hafrún Birna Helgadóttir - FH
Elísa Birta Káradóttir - HK
Sunna Rún Sigurðardóttir - ÍA
Ísold Hallfríðar Þórisdóttir - KH
Anna Arnarsdóttir - Keflavík
Arnfríður Auður Arnarsdóttir - Grótta
Rebekka Sif Brynjarsdóttir - Grótta
Fanney Lísa Jóhannesdóttir - Stjarnan
Ágústa María Valtýrsdóttir - Valur
Sóley Edda Ingadóttir - Valur
Hrafnhildur Salka Pálmadóttir - Valur
Birgitta Rún Finnbogadóttir - Tindastóll
Elísa Bríet Björnsdóttir - Tindastóll
Anika Jóna Jónsdóttir - Víkingur R
Hekla Dögg Ingvarsdóttir - Þróttur R
Bríet Kolbrún Hinriksdóttir - Þór/KA
Landsliðshópur U17: Undirbúa sig fyrir seinni umferðina
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.