07.02.15 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Doria lánaður frá Marseille til Sao Paulo (Staðfest)

Doria (t.h.) í leik með Botafogo í Brasilíu

Mynd: Getty Images

Brasilíski varnarmaðurinn, Doria, sem leikur með Marseille í Frakklandi hefur verið lánaður til Sao Paulo í heimalandinu út tímabilið.
Doria, sem er fyrirliði U21 árs landsliðs Brasilíu, kom til Marseille frá Botafogo en hefur ekki spilað eina mínútu fyrir franska liðið á tímabilinu.
Hann þykir einn efnilegasti varnarmaður heims um þessar mundir en Marseille hefur ákveðið að lána hann til Sau Paolo í heimalandi hans.
Hann verður á láni fram í júní en Sao Paulo á möguleika á því að kaupa hann að því loknu.
Marcelo Bielsa er eflaust ánægður með fréttirnar en hann keypti ekki Doria til félagsins heldur gerði forseti Marseille það án þess að ráðfæra sig við þjálfara liðsins.