Það fara fjórir leikir fram í enska bikarnum í kvöld þar sem endurspila þarf 6 leiki af 16 í 32-liða úrslitunum.
Fjórir verða endurspilaðir í kvöld þar sem Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley taka á móti Ipswich. Sigurvegarinn þar mætir annað hvort Sheffield Wednesday eða Fleetwood Town í 16-liða úrslitum.
Sheffield og Fleetwood eiga einnig leik í kvöld, rétt eins og Grimsby og Luton sem eigast við á sama tíma og Sheffield United þarf að endurspila leik við sögulegt utandeildarlið Wrexham.
Leikir kvöldsins:
19:45 Burnley - Ipswich
19:45 Fleetwood - Sheffield Wed.
19:45 Grimsby - Luton
19:45 Sheffield Utd - Wrexham (Stöð 2 Sport 3)
Athugasemdir