Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
banner
   lau 07. febrúar 2026 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jacquet meiddist illa á öxl
Mynd: EPA
Franski varnarmaðurinn Jérémy Jacquet, sem Liverpool keypti á lokadegi janúargluggans, varð fyrir alvarlegum meiðslum á öxl og verður frá keppni næstu mánuðina.

Tvítugur Jacquet meiddist í tapi gegn Lens í franska boltanum í dag og fór sárkvalinn af velli.

„Þetta er öxlin hans. Við þurfum að bíða og sjá en þetta lítur út fyrir að vera frekar alvarlegt," sagði Habib Beye, þjálfari Rennes, eftir leikslok.

Liverpool borgar 60 milljónir punda til að kaupa Jacquet eftir að hafa unnið kapphlaup við Chelsea og fleiri stórveldi um þennan tekníska miðvörð.

Jacquet gengur því til liðs við Liverpool næsta sumar og er búinn að gera fimm ára samning við félagið.

   02.02.2026 23:03
Jeremy Jacquet gengur í raðir Liverpool í sumar (Staðfest)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner
banner