Fotbolti.net
07.03.15 - 10:32
Magnús Már Einarsson

Jonny Evans í sex leikja bann (Staðfest)

Jonny Evans í sex leikja bann (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska knattspyrnusambandið hefur úrskurðað Jonny Evans varnarmaður Manchester United í sex leikja bann eftir að hann hrækti á Papiss Cisse leikmann Newcastle í leik liðanna í vikunni.

Cisse hrækti einnig á Evans og fer í sjö leikja bann. Cisse fær einn auka leik í bann þar sem hann var einnig dæmdur í bann fyrr á þessu tímabili.
Evans hafði lýst yfir sakleysi sínu og mótmælt ákæru enska knattspyrnusambandsins.

Aganefnd sambandsins hlustaði ekki á rök Norður-Írans og því er hann kominn í bann.

Evans verður í banni gegn Arsenal í enska bikarnum á mánudag sem og í komandi leikjum gegn Tottenham, Liverpool, Aston Villa, Manchester City og Chelesa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.