07.03.17 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Korkut nýr þjálfari Leverkusen (Staðfest)

Korkut mættur til starfa. Hann er fyrrum landsliðsmaður Tyrklands.

Mynd: Getty Images

Bayer Leverkusen hefur ráðið Tayfun Korkut sem aðalþjálfara til loka tímabils eftir að Roger Schmidt var rekinn.
Schmidt missti starfið eftir fjóra tapleiki í sex leikjum í Bundesligunni. Hans síðasti leikur var 6-2 tap gegn Borussia Dortmund.
Korkut er 42 ára og er fyrrum þjálfari Hannover. Hann var ráðinn stjóri Kaiserslautern síðasta sumar en hætti eftir aðeins sex mánuði í starfi.
Leverkusen er í 10. sæti þýsku Bundesligunnar og er 4-2 undir gegn Atletico Madrid eftir fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.