Fotbolti.net
07.03.21 - 15:35
Aksentije Milisic

Byrjunarliðin í Manchester-slagnum: Martial og James byrja - Tvær breytingar hjá City

Martial byrjar.

Martial byrjar.

Canon

Mynd: Getty Images

Klukkan 16:30 verður flautað til leiks á Etihad vellinum í Manchester borg þar sem Manchester City og Manchester United mætast.
City situr í efsta sæti deildarinnar og virðist ætla sigla Englandsmeistaratitlinum nokkuð örugglega í hús á meðan grannar þeirra í United eru í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Pep Guardiola og lærisveinar hans hafa verið óstöðvandi að undanförnu en liðið hefur unnið 21 leik í röð í öllum keppnum, hvorki meira né minna. Á sama tíma hefur United verið í vandræðum en liðið hefur ekki skorað mark í tveimur síðustu leikjum sínum.

City vann öruggan 4-1 sigur á Wolves fyrr í vikunni og þá gerði United markalaust jafntefli gegn Crystal Palace í hræðilegum fótboltaleik.

Pep Guardiola, stjóri City, gerir tvær breytingar frá sigurleiknum góða gegn Úlfunum. Bernardo Silva og Aymeric Laporte fara á bekkinn og inn koma Oleksandr Zinchenko og Ilkay Gundogan.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, gerir alls fimm breytingar frá jafnteflisleiknum gegn Palace. Victor Lindelof, Scott McTominay, Daniel James og Anthony Martial koma allir inn í liðið.

Man City: Ederson, Cancelo, Dias, Stones, Zinchenko, Rodrigo, Gundogan, De Bruyne, Mahrez, Sterling, Jesus.
(Varamenn: Steffen, Walker, Aguero, Laporte, Bernardo, Torres, Mendy, Fernandinho, Foden)

Manchester United: Henderson, Wan-Bissaka, Lindelof, Maguire, Shaw, McTominay, Fred, James, B. Fernandes, Rashford, Martial.
(Varamenn: Grant, Bailly, Greenwood, Amad, Telles, Matic, Williams, Tuanzebe, Shoretire)

Byrjunarliðin í Manchester-slagnum: Martial og James byrja - Tvær breytingar hjá City
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.