Það eru enn líkur á að Neymar geti spilað með Paris Saint-Germain gegn Barcelona í Meistaradeildinni á miðvikudag.
Þetta segir Mauricio Pochettino, stjóri PSG, en Neymar er frá þessa stundina vegna meiðsla.
Brassinn hefur ekki spilað í tæplega mánuð og verður ekki með í kvöld gegn Brest í franska bikarnum.
Það væri þó hægt að gefa Neymar frí í seinni leiknum í 16-liða úrslitum en PSG vann fyrri leikinn 4-1 á útivelli, afar sannfærandi.
„Hann verður ekki hér í næsta leik en við erum ánægðir með hvernig þetta gengur og sjáum til á næstu dögum ef hann getur verið með gegn Barcelona," sagði Pochettino.
Neymar er fyrrum leikmaður Barcelona og er reglulega orðaður við endurkomu til Spánar.
Athugasemdir