Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 07. mars 2021 10:30
Aksentije Milisic
Ramos þarf að gera upp hug sinn hjá Real fyrir lok mánaðarins
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid, hefur fengið þau skilaboð frá Florentino Perez, forseta félagsins, að hann hafi tíma til lok mars mánaðar til að samþykkja framlengingu á samningi sínum. Eftir þann tíma ku tilboðið renna út.

Ramos kom til Real Madrid árið 2005 og hefur unnið marga titla hjá félaginu. Samningur hans rennur út eftir þetta tímabil og talið er að hann muni halda annað.

Ramos og Perez eiga í góðu sambandi en Perez segir að hann þurfi að fá svar því liðið er að fara plana félagasskiptagluggann sinn fljótlega.

Ramos er goðsögn hjá félaginu en hann hefur verið orðaður við lið eins og PSG og Manchester United. Þá hefur hann einnig verið orðaður við MLS deildina.

Þessa stundina er Ramos frá vegna meiðsla en hann meiddist á hné í janúar mánuði. Hann verður því ekki með í Madrídar slagnum síðar í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner