mið 07. apríl 2021 09:19
Magnús Már Einarsson
De Bruyne framlengir við Manchester City
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn magnaði Kevin de Bruyne hefur skrifað undir nýjan samning við Manchester City.

Nýi samningurinn gildir til ársins 2025.

De Bruyne hefur skorað 65 mörk og lagt upp 105 í 255 leikjum með Manchester City síðan hann kom til félagsins frá Wolfsburg árið 2015.

Þessi 29 ára gamli Belgi hefur unnið ensku úrvalsdeildina tvívegis, enska bikarinn einu sinni og deildabikarinn fjórum sinnum.

„Ég kom hingað með miklar væntingar en þær hafa farið fram úr björtustu vonum," sagði De Bruyne eftir undirskrift.
Athugasemdir
banner
banner
banner