29.09.26 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Framkvæmdastjóri Man City segir málið langt frá því búið

Ferran Soriano, framkvæmdastjóri Man City, ásamt Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformanni félagsins

Mynd: EPA

Al Mubarak er hér ásamt Sir Jim Ratcliffe, meðeiganda hjá Man Utd

Ferran Soriano, framkvæmdastjóri Manchester City, segir að mál ensku úrvalsdeildarinnar gegn félaginu sé langt frá því að vera búið og að City ætli að berjast með kjafti og klóm fyrir því að sanna sakleysi sitt.

TENGT EFNI
Stjórnarformaður Man City sendi opið bréf til stuðningsmanna
Sky greinir frá því að Soriano hafi farið á lokaðan fund með framkvæmdastjórn sambands evrópskra fótboltafélaga í Kaupmannahöfn í gær.
Heimildir Sky herma að hann hafi ekki viðurkennt sekt Man City á fundinum, en sagt að félagið ætlaði sér að berjast gegn niðurstöðunni.
Soriano á þar að hafa bent á að átta ár séu liðin frá því málið var fyrst tekið til rannsóknar og að enn geti liðið talsverður tími þar til endanleg niðurstaða fæst.
Man City hyggst áfrýja dómnum og því tekur við nýtt ferli þegar niðurstaðan, og síðar möguleg refsing, verður tekin fyrir.
Hvorki Man City né enska úrvalsdeildin hafa neitað þeim fregnum að félagið hafi verið fundið sekt um meirihluta ákæruliðanna sem lagðir voru fram árið 2023.
Athletic greindi frá því á föstudag að óháð nefnd hefði fundið Man City sekt í 114 af 115 ákæruliðum.
Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformaður Man City, sendi í kjölfarið opið bréf til stuðningsmanna þar sem hann sagði eftirfarandi „Það er enn langt í land í ferli ensku úrvalsdeildarinnar og við erum fullvissir og staðráðnir í að sanna að málstaður félagsins sé jafn sterkur og hann var í upphafi,“ sagði Al Mubarak.