Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 07. apríl 2021 23:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lewandowski staðfestir að hann verði ekki með í seinni leiknum
Mynd: Getty Images
„Það er of stutt í seinni leikinn. Ég verð ekki klár fyrir leikinn gegn PSG," sagði Robert Lewandowski í kvöld.

Lewandowski meiddist í landsleik með Póllandi og var ekki með gegn PSG í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

PSG leiðir einvígið eftir 2-3 sigur í kvöld á Allianz Arena.

„Ég geri allt sem ég get til að snúa til baka en einungis þegar mér finnst það öruggt. Mér líður ekki vel að sitja heima," sagði pólski framherjinn.

Bayern var án Lewandowski, Serge Gnabry, Corentin Tolisso og Douglas Costa í leiknum. PSG var án Marco Veratti en endurheimtir Leandor Paredes úr leikbanni í seinni leiknum.

Í kvöld fóru þeir Leon Goretzka, Niklas Sule og Marquinhos meiddir af velli.
Athugasemdir
banner
banner