Edinson Cavani, leikmaður Manchester United, skráði sig í sögubækurnar í Evrópudeildinni í gær.
Cavani skoraði tvö mörk í 3-2 tapi Man Utd gegn Roma en enska liðið fer áfram samanlagt 8-5 eftir öruggan sigur í fyrri leiknum.
Úrúgvæinn varð um leið sá fyrsti frá 1986 til að skora tvær tvennur í undanúrslitum keppninnar. Klaus Allofs gerði það síðast fyrir Köln.
Mörkin hjálpuðu Man Utd mikið að komast áfram og mætir liðið Villarreal í úrslitaleiknum..
Cavani hefur nú skorað 16 mörk í síðustu 15 leikjum sínum í Evrópudeildinni.
Athugasemdir