Fotbolti.net
07.05.26 - 20:00
Brynjar Ingi Erluson

Felix með þrennu í mikilvægum sigri Al Nassr - Ronaldo skoraði eitt

Joao Felix skoraði þrennu

Joao Felix skoraði þrennu

Canon

Mynd: Al-Nassr

Cristiano Ronaldo skoraði 26. deildarmark sitt á tímabilinu er Al Nassr vann Al Shabab, 4-2, í 32. umferð sádi-arabísku deildarinnar í kvöld.
Joao Felix skoraði tvö mörk í upphafi leiks áður en Ronaldo bætti við þriðja stundarfjórðungi fyrir lok venjulegs leiktíma. Felix fullkomnaði síðan þrennu sína með marki úr vítaspyrnu á lokasekúndunum.

Þetta var 971. mark Ronaldo á ferlinum og er hann nú skrefi nær því að koma sér í sögubækurnar.

Auk þess er hann og liðsfélagar hans nær deildarmeistaratitlinum en liðið er með fimm stiga forystu á Al Hilal sem á einn leik til góða. Þau mætast síðan í næstu umferð og mun sigur tryggja Al Nassr fyrsta deildartitil Ronaldo í landinu.

Ronaldo skoraði 971. markið á ferlinum

Ronaldo skoraði 971. markið á ferlinum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.