Fotbolti.net
25.06.26 - 00:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dressmann

Viktor Unnar spáir í leiki dagsins á HM

Gylfi Þór Sigurðsson og Viktor Unnar.

Gylfi Þór Sigurðsson og Viktor Unnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Línur eru farnar að skýrast á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Tveir riðlar eru búnir og þrír riðlar til viðbótar klárast næsta sólarhringinn.

Þjálfarinn og fyrrum leikmaðurinn Viktor Unnar Illugason spáir í leikina sem eru framundan.
A-riðill
Tékkland 1 - 2 Mexíkó (01:00)
Gestgjafarnir halda uppteknum hætti og vinna þennan leik.

Suður-Afríka 1 - 3 Suður-Kórea (01:00)
Leikurinn sem heimurinn bíður eftir. Afríkumenn komast yfir í þessum leik og frændur þeirra í suðrinu svara með þremur mörkum og tryggja sér 2. sæti í þessum riðli.

E-riðill
Curacao 0 - 3 Fílabeinsströndin (20:00)
Curacao eru bensínlausir og Fílabeinsstrendingar þurfa á sigri að halda.

Ekvador 1 - 4 Þýskaland (20:00)
Ekvadorar eru búnir að missa alla von eftir leikinn við Curacao. Ná þó að lauma inn einu marki. Þjóðverjar solid og eru smá dark horse í þessu móti og spila sinn fræga Nagelsmann bolta.

F-riðill
Japan 2 - 3 Svíþjóð (23:00)
Bergvall sýningin sem allir hafa beðið eftir. Svíar rassskelltir af Hollandi í síðasta leik en koma öllum á óvart og vinna þennan leik þvert á allar spár. Ég er aðeins dýpri í fræðunum og sé Svía klára þetta.

Túnis 0 - 5 Holland (23:00)
Holland rúllar yfir lánlausa Túnismenn sem eru ennþá að finna taktinn eftir áhugaverð þjálfaraskipti. Framtíðarleikmaður Spurs, Gakpo, mun skora 2 mörk.
Mexíkó hefur unnið báða leiki sína til þessa.

Mexíkó hefur unnið báða leiki sína til þessa.

Canon

Mynd: EPA

Lucas Bergvall.

Lucas Bergvall.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.