Var upp á bráðamóttöku í 28 tíma

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvík í Bestu deild kvenna, var mættur á hliðarlínuna hjá sínu liði í gær þrátt fyrir að hafa farið í aðgerð út af botnlangakasti daginn áður. Gylfi var alls í 28 tíma upp á bráðamóttöku.
„Þetta voru nú meiri dagarnir," sagði Gylfi í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn gegn Víkingi sem endaði 1-1.
„Ég var í 28 klukkutíma upp á bráðamóttöku en komst sem betur fer í aðgerð í gærkvöldi. Ég náði að kreista út grænt ljós frá einum lækninum þarna. Það kom eiginlega ekki til greina að missa af þessum leik."
„Ég er enn lyfjaður og nýsvæfður. Þið kannski takið ekki mark á þessu viðtali," sagði Gylfi léttur.
Hann ætlaði að taka því rólega eftir leikinn í gær, eða kannski ekki.
„Já, ætli það verði ekki bara fósturstellingin, jafnvel bara bragðarefur og Netflix. Ég held að ég verði bara í kósý í kvöld og leyfi mér það. En svo endar það væntanlega á því að maður horfi á þennan leik og greini fyrir fund á morgun. Svo tekur við frí þannig að þetta er fín tímasetning til að fá þetta. Ég mæti tvíefldur til baka," sagði Gylfi.