Fotbolti.net
23.06.26 - 22:39
Snæbjört Pálsdóttir

Fyrirliðinn fyrir EM: „Þó við séum lítil þjóð þá erum við samt drullugóðar“

Auglýsing
Helga Rut Einarsdóttir átti góðan leik fyrir Val í 1-1 jafntefli gegn FH í Kaplakrika og heldur nú á lokamót Evrópumóts U19 landsliða

Helga Rut Einarsdóttir átti góðan leik fyrir Val í 1-1 jafntefli gegn FH í Kaplakrika og heldur nú á lokamót Evrópumóts U19 landsliða

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Valur sótti stig í Kaplakrika í kvöld þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við FH í 9. umferð Bestu deildarinnar. Helga Rut Einarsdóttir átti góðan leik fyrir Val og var sátt við margt í frammistöðu liðsins þrátt fyrir að sigurinn hafi ekki náðst.

Lestu um leikinn: FH 1 - 1 Valur

„Bara fínt sko, við þurftum stig en alveg svekkjandi að við náðum ekki að skora meira. Við fengum alveg nokkur færi sem við hefðum getað nýtt okkur betur. Bara heilt yfir mjög sterkt að fá stig á móti þeim.“

„Loksins þegar við settum pressu á þær þá náðum við rönni og náðum svolítið að stoppa þær þannig.“

Deildin fer nú í hlé en framundan hjá Helgu er þó eitt stærsta verkefni sumarsins þegar hún leiðir U19 landslið Íslands sem fyrirliði á lokamóti Evrópumótsins.

„Bara ógeðslega spennt. Við erum í sjúklega góðum riðli og við eigum bara góðan séns á að komast upp úr honum. Við erum með sjúklega gott lið og ég er bara mjög spennt fyrir því.“

Í hópnum eru 8 leikmenn úr bæði Val og FH sem mættust í Kaplakrika í kvöld en Helga segir þær góðar vinkonur utan vallar.

„Já, sjúklega góðar vinkonur. Við erum búnar að vera saman upp öll yngri landsliðin og búnar að fara í ótrúlega margar ferðir saman. Já, eiginlega bara bestu vinkonur.“

Markmiðið á lokamótinu er skýrt að hennar sögn.

„Bara að komast upp úr riðlinum og gera okkar allra besta.“

„Við getum miklu meira en aðrar þjóðir halda og þó við séum lítil þjóð þá erum við samt drullugóðar.“


Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.