Fotbolti.net
23.06.26 - 22:57
Snæbjört Pálsdóttir

Guðni Eiríks: Leikmenn FH voru í krummafót í vítateig Vals

Auglýsing
Guðni Eiríksson var allt annað en sáttur eftir 1-1 jafntefli gegn Val

Guðni Eiríksson var allt annað en sáttur eftir 1-1 jafntefli gegn Val

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

FH og Valur skildu jöfn, 1-1, í Kaplakrika í kvöld en Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var langt frá því sáttur með niðurstöðuna.

„Bara gríðarleg vonbrigði að fara út úr þessum leik með eitt stig, ótrúlega dapurt. Við eigum sökina á því algjörlega, FH liðið. Það erum við sem klúðrum stöðunum sem við erum í. Það erum við sem nýtum ekki urmul af tækifærum sem við komum okkur í.“

Lestu um leikinn: FH 1 - 1 Valur

„Leikmenn FH liðsins voru í krummafót í vítateig Vals, skoruðu eitt mark og það er ótrúlega dapurt miðað við yfirburðina.“

„Það koma svona leikir þar sem ekkert gengur upp fyrir framan mark andstæðingsins en það er ekkert ástæða til þess að panikka yfir því. FH liðið er búið að skora fullt af mörkum í sumar.“

FH datt út úr Mjólkurbikarnum gegn ÍBV á dögunum og Guðni útilokar ekki að það hafi setið aðeins í liðinu.

„Það má vel vera, það var högg líka. Það var líka svona leikur þar sem við vorum með meira possession, komumst í ágætis stöðu en nýttum færin ekki nægilega vel og vorum alltaf að elta.“

„Bara hrós á Val, bara flott hjá þeim en ég held að þetta jafntefli séu ekki sanngjörn úrslit.“

Nú tekur við hlé á deildinni áður en FH mætir Þrótti.

„Það eru alltaf erfiðir leikir á móti Þrótti. Þannig að við þurfum að svara fyrir þetta jafntefli og það verður vonandi skemmtilegur leikur því að Þróttararnir þurfa að svara fyrir skitu í gær. Þannig það verður vonandi stuð hérna.“

Tveir U19 landsliðsmenn FH, Jónína Linnet og Ingibjörg, fóru meiddar af velli í kvöld. Guðni var bjartsýnn á stöðu Jónínu en hafði meiri áhyggjur af Ingibjörgu.

„Ég hef engar áhyggjur af Jónínu. Það er aðeins verra með Ingibjörgu, hún var tæp fyrir leik á liðböndum í hné og fær högg á ökklann.“

„Hún var tekin útaf bara til þess að hlífa henni. Ég vona það bara að hún fái að taka einhvern þátt í þessu með U19 ára liðinu okkar.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.