Rashford ekki í áætlunum Man Utd - Tekur Mourinho aftur við Real? - Arsenal, Barcelona og Man City hafa áhuga á Enzo
   fim 07. maí 2026 23:03
Brynjar Ingi Erluson
McGinn: Besti leikur sem við höfum spilað í langan tíma
Mynd: EPA
Skoski miðjumaðurinn John McGinn var í alsælu eftir að Aston Villa komst í úrslit Evrópudeildarinnar í kvöld.

McGinn var einn af bestu mönnum Villa í leiknum og skoraði tvö mörk í sannfærandi 4-0 sigri á Forest.

Hann hrósaði Unai Emery í hástert, en segist einnig hafa tekið margt frá öðrum stjórum í gegnum tíðina.

„Hann hefur upplifað töluvert fleiri undanúrslitaleiki í Evrópu en við. Í undanúrslitum Sambandsdeildarinnar fórum við kannski aðeins of geyst í þetta, en þetta hafðist í dag.“

„Hann hefur verið ótrúlegur, en það sama á við um alla hina sem ég spilaði fyrir. Steve Bruce gaf mér sjálfstraustið til að spila á Englandi, Dean Smith gaf mér sjálfstraustið til að spila í ensku úrvalsdeildinni og Steven Gerrard kenndi mér hvernig á að vera leiðtogi,“
sagði McGinn.

Victor Lindelöf spilaði óvænt hlutverk á miðjunni og kom verulega á óvart með frammistöðu sinni.

„Victor hefur verið framúrskarandi. Hann hefur verið svolítið óheppinn síðan hann gekk til liðs við okkur, en hann hefur ekki gert nein mistök. Það var stórkostlegt að sjá hvernig hann passaði inn í þetta. Stjórinn var búinn að vinna mikið í þessu og við erum með marga fjölhæfa leikmenn. Þetta hentaði okkur vel og er besti leikur sem við höfum spilað í langan tíma.“

Aston Villa á raunverulegan möguleika á að vinna fyrsta Evróputitilinn á þessari öld. McGinn segist ólmur vilja færa stuðningsmönnum og félaginu Evrópudeildartitilinn.

„Ég fann fyrir þessu í morgun, en núna er þetta bara spurning um taka þessu opnum örmum. Þú sérð strákana sem gerðu þetta árið 1982 og þá sem unnu Evrópukeppni bikarhafa á tíunda áratugnum. Félagið hefur gengið í gegnum rosalegar lægðir, en svona geggjaður hópur verðskuldar árangurinn. Vonandi munum við færa félaginu það,“ sagði McGinn.
Slapp
banner