Rashford ekki í áætlunum Man Utd - Tekur Mourinho aftur við Real? - Arsenal, Barcelona og Man City hafa áhuga á Enzo
   fim 07. maí 2026 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Orri þurfti að manna sig upp í að syngja lagið fyrir framan tugi þúsunda
Er á sínu öðru tímabili hjá spænska félaginu.
Er á sínu öðru tímabili hjá spænska félaginu.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Þakklátur stuðningsmönnum.
Þakklátur stuðningsmönnum.
Mynd: EPA
Með bikarinn eftir leik.
Með bikarinn eftir leik.
Mynd: Instagram/orrioskarsson
Mynd: EPA
Landsliðsfyrrirliðinn Orri Steinn.
Landsliðsfyrrirliðinn Orri Steinn.
Mynd: KSÍ
Mynd: EPA
Orri Steinn Óskarsson varð í síðasta mánuði, 18. apríl, bikarmeistari með liði sínu, Real Sociedad, eftir úrslitaleik við Atletico Madrid. Orri Steinn ræddi við Fótbolta.net í síðustu viku um ýmislegt tengt leiknum og þar á meðal fögnuðinn.

Sociedad var að vinna konungsbikarinn, Copa del Rey, í fjórða sinn og í fyrsta sinn síðan 2020.

Hvernig fögnuðuð þið þessu, hvernig var dagurinn og dagarnir á eftir?

„Það var auðvitað mikið fagnað, nokkrir frídagar, farið út að borða og fagnað með fólkinu í bænum og við bara reyndum að njóta þess eins og við gátum," segir Orri Steinn.

„Það var leikur stuttu eftir þetta (á miðvikudeginum) þannig að við fengum ekki jafn mikinn tíma og við hefðum kannski viljað, en það voru samt mjög góðir dagar með fólkinu í bænum og við náðum að halda skrúðgöngu og náðum aðeins að vera bara með fólkinu í bænum. Það var það sem skipti mestu máli. Það var svo mjög skemmtilegt að fá að fara upp á svalir í ráðhúsinu og sjá allt hafið af stuðningsmönnunum."

Þakklátur stuðningsmönnunum
Farðu aðeins í gegnum þetta augnablik upp á svölunum þar sem þú byrjar lagið þitt og allir taka undir með þér. Hvernig er að heyra þetta?

„Það er bara mjög skemmtilegt að upplifa þetta, ég hef ekki mikið verið að syngja og ég þurfti aðeins að manna mig upp í þetta. En auðvitað bara gaman fyrir fólkið, ég hugsaði að þetta væri í eitt af síðustu skiptunum sem að þetta lag myndi koma þar sem þessu bikartímabili er lokið. Þannig ég ákvað að gefa þeim bara eitt síðasta skipti og það var bara skemmtilegt."



Það að það séu þarna tugir þúsunda að syngja lagið þitt, kemur gæsahúð?

„Þetta er auðvitað bara mjög einstakt og maður hefði aldrei séð eitthvað svona fyrir sér að svona myndi geta gerst. Stuðningsmennirnir þeir hafa bara keyrt þetta lag í gegn, komið þessu út um allt og búið til rosalega stemningu í kringum það sem að er mjög einstök. Það var bara geggjað að fá að vera partur af einhverju svona og ég bara þakka þeim mikið fyrir það."

Klassískt grín
Svo sá ég myndband af þér þar sem þú varst að reyna að fara með bikarinn í gegnum öryggishlið, var það eitthvað vesen eða?

Orri hló áður en hann svaraði. „Nei, þetta er nú bara svona klassískur hlutur sem að maður gerir með bikarana hef ég heyrt, að reyna að fara með þá í gegnum öryggishlið, þeir voru ekki sáttir með það (öryggisverðirnir). En ég reyndi," segir framherjinn.



Mæli með því að prófa það
Hvernig var svo að reyna að koma sér aftur niður á jörðina eftir þetta og fókusa á næstu leiki eftir úrslitaleik. Var það hægara sagt en gert kannski?

„Það er rosaleg áskorun, maður upplifði ekki mikla spennu fyrir leiknum sem kom stuttu eftir úrslitaleikinn, en auðvitað þurfti maður að reyna að gíra sig upp í það og aðeins að slökkva á fögnuðinum í smá. Við reyndum eins og við gátum, fór ekki alveg eins og við vildum í leiknum, en ég mæli með að fólk prófi þetta, þetta er ekki mjög auðvelt að reyna að gíra sig aftur upp í alvöruna, en við reyndum."
Slapp
banner
banner
banner