Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
   mán 30. mars 2026 14:40
Kári Snorrason
Orri ánægður með lagið óvænta - „Var ekki búinn að gera neitt til að verðskulda þetta“
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson hefur komið frábærlega inn í lið Real Sociedad á nýju ári eftir að hafa verið lengi frá vegna meiðsla. Liðið situr sem stendur í sjöunda sæti La Liga, þremur stigum á eftir Celta Vigo sem er í Evrópusæti.

Fótbolti.net ræddi við Orra á dögunum þar sem hann er staddur í Kanada með íslenska landsliðinu, en liðið mætir Haítí í vináttuleik á morgun. Orri lét til sín taka í leiknum gegn Kanada á laugardag og skoraði bæði mörk Íslands í leiknum.

„Þetta er búið að vera frábært eftir jól. Mikið af góðum úrslitum og kominn nýr þjálfari sem kom með nýjar hugmyndir og nýtt andrúmsloft sem skiptir okkur mjög miklu máli. Þetta hafði verið svolítið þungt framan af tímabili. Við erum á leiðinni í bikarúrslit og nálægt Evrópusæti þannig við erum á góðum stað.“

Real Sociedad mætir Atlético Madrid í úrslitaleik Konungsbikarsins um miðjan apríl: „Maður áttar sig ekki alveg á því hvað þetta er stór leikur. Maður horfði á þetta í sjónvarpinu þegar maður var lítill. Vanalega var þetta Barcelona - Real Madrid, en við erum þarna í ár. Við erum spenntir og ætlum okkur að taka eina dollu.“

Stuðningsmannalagið óvæntur smellur
Stuðningsmannalag Real Sociedad um Orra hefur farið eins og eldur um sinu á alnetinu. Textinn í laginu er: „Por la mañana café. Por la tarde ron. Llévame a Sevilla. Orri Óskarsson," og á íslensku: „Kaffi á morgnana, romm á kvöldin, farðu með mig til Sevilla, Orri Óskarsson." Og er lagið eftir hinn virta söngvara Bad Bunny.

„Þetta var skemmtilegt ég bjóst ekki alveg við þessu. Ég var ekki búinn að gera neitt til að verðskulda lag á þessum tímapunkti. Ég held að það lýsi stuðningsmönnunum vel. Ég hafði átt erfitt tímabil vegna meiðsla.

En síðan koma þeir með eitthvað svona og maður fær meiri innblástur. Þá byrjuðu hlutirnir að tikka og ég skoraði í nokkrum leikjum í röð. Þetta er mjög skemmtilegt. Ég er þakklátur stuðningsmönnunum að hafa sýnt mér þessa ást. Þetta fór aðeins lengra en ég bjóst við.“


Lagið hefur verið eins og áður sagði í mikilli dreifingu á netinu: „Þetta fór víða um heiminn, ég veit ekki alveg hvað gerðist en það var skemmtilegt að sjá. Mikið af fólki á Íslandi að senda á mig. Mamma mín sendi mér myndbönd af krökkum að syngja þetta, það var mjög skemmtilegt. Ég elska að sjá svona,“ sagði Orri að lokum.


Slapp
Athugasemdir
banner
banner