Rashford ekki í áætlunum Man Utd - Tekur Mourinho aftur við Real? - Arsenal, Barcelona og Man City hafa áhuga á Enzo
   fim 07. maí 2026 19:37
Brynjar Ingi Erluson
Valverde ekki með gegn Barcelona - Man ekki eftir öllu sem gerðist
Mynd: EPA
Federico Valverde, leikmaður Real Madrid, hefur verið ráðlagt af læknum að hvíla næstu vikuna eftir að það kom til handalögmála milli hans og Aurelien Tchouameni á æfingasvæði félagsins í dag. Þetta segir El Mundo.

Mikil ólga er innan leikmannahóps Real Madrid. Valverde og Tchouameni slógust í annað sinn á nokkrum dögum og í þetta sinn endaði það með ósköpum.

Það kom til handalögmála á milli Valverde og Tchouameni sem endaði með því að Úrúgvæinn skall með hausinn í jörðina. Hann fór á sjúkrahús í kjölfarið. Florentino Perez, forseti Madrídinga, er nú að skoða það hvernig hægt sé að leysa málin innan félagsins.

El Mundo segir að Valverde muni ekki eftir öllu því sem gerðist og hafa læknar ráðlagt honum að hvíla næstu vikuna og mun hann því ekki spila gegn Barcelona um helgina.

Eitthvað þarf að gerast innan herbúða Real Madrid og er alls ekki útilokað að Tchouameni missi einnig af leiknum, það er að segja ef félagið ákveður að setja hann í agabann.

Barcelona getur unnið spænsku deildina en það þarf aðeins stig gegn erkifjendum sínum til að tryggja titilinn.
Slapp
banner