Madrídingurinn Federico Valverde hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttaflutnings dagsins, en hann segir hann og Aurelien Tchouameni ekki hafa beitt hnefum í klefanum og að málið hafi verið blásið upp í fjölmiðlum.
Fjölmiðlar á Spáni greindu frá slagsmálunum í dag og sögðu atvikið það alvarlegt að það þurfti að huga að Valverde á sjúkrahúsi.
Real Madrid svo gott sem staðfesti þessi áflog með yfirlýsingu um að Valverde verði frá næstu tvær vikurnar eftir að hafa hlotið áverka á höfði.
Úrúgvæinn hefur stigið fram til að segja frá sinni hlið, en hann segir fjölmiðla hafa blásið málið upp. Hann og Tchouameni hafi rifist á æfingunni, en að engir hnefar hafi farið á loft.
„Í gær þá kom upp atvik milli mín og liðsfélaga vegna atviks sem átti sér stað á æfingu, þar sem þreyta og gremja í keppni gera þetta að stærra atviki en það var. Þetta getur gerst í venjulegum klefa og er það yfirleitt leyst innanbúðar áður en það er birt í fjölmiðlum. Augljóslega er einhver á bak við þetta allt sem flýtti sér að segja frá málinu, og við bætist tímabil án titla þar sem Real Madrid er alltaf í sviðsljósinu og allt er blásið upp.
„Við lentum í öðru ósætti í dag og í miðju rifrildi lenti ég óheppilega á borði sem varð til þess að ég fékk smá skurð á ennið og þurfti ég því að fara í hefðbundna skoðun á spítalann.“
„Á engum tímapunkti réðst hann á mig og ég réðst ekki heldur á hann, þó ég skilji það að það er auðveldara að trúa því að við höfum lamið hvorn annan eða þetta hafi verið með vilja gert, en það var alls ekki þannig.“
„Mér finnst eins og reiði mín varðandi stöðuna, pirringurinn sem er farinn að skapast hjá sumum af okkur í lok tímabils þar sem við erum á síðustu dropunum og andlega hliðin niðurbrotin, varð til þess að ég fór að rífast við liðsfélaga minn.“
„Mér þykir þetta ótrúlega leitt því þessi staða særir mig og sömuleiðis staðan sem við erum að ganga í gegnum. Madrid er eitt það mikilvægasta í mínu lífi og mér stendur ekki á sama. Úrslitin eru samansafn af hlutum sem verða að tilgangslausu rifrildi sem skaðar ímynd mína og býr til svigrúm fyrir fólk til þess að búa til rógburð og ýkja atvikslýsingar. Það er enginn vafi á því. Allir árekstrar sem eiga sér stað inn á vellinum ery úr sögunni um leið og við stígum af vellinum og ef ég þarf að vernda hann inn á vellinum þá verð ég sá fyrsti til að gera það.“
„Ég ætlaði ekki að ræða þetta fyrr en eftir tímabilið. Við duttum úr leik í Meistaradeildinni þar sem ég bældi niður reiðina og var ósáttur við sjálfan mig. Við köstuðum öðru ári frá okkur og ég var ekki í stuði að birta færslur á samfélagsmiðlum því eina andlitið sem ég vildi sýna var á vellinum og mér fannst ég gera það. Þess vegna er mest sársaukafullt við þessa stöðu að þetta hafi komið í veg fyrir að ég gæti spilað næsta leik vegna læknisfræðilegra ástæðna. Ég hef alltaf lagt mig allan fram í verkefnið og þess vegna særir það meira en allt að geta það ekki. Ég er klár í að styðja félagið og liðsfélaga mína, og vinna að þeirri ákvörðun sem þeir telja nauðsynlega,“ sagði Valverde.


