Spænska félagið Real Madrid hefur staðfest að Federico Valverde verði frá næstu tvær vikurnar eftir að hafa hlotið áverka á heila eftir slagsmál sín við Aurelien Tchouameni á æfingu.
Stærstu miðlarnir á Spáni sögðu frá því að Valverde og Tchouameni hafi lent saman í búningsklefa Madrídinga sem varð til þess að sá úrúgvæski skall með höfuðið í jörðina.
Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem kom í ljós að hann hafi hlotið áverka á heila og var honum ráðlagt að hvíla í tíu til fjórtán daga. Samkvæmt El Mundo þá var allt í móðu hjá Valverde sem mann aðeins hluta af atburðarásinni.
„Læknateymi Real Madrid framkvæmdi rannsóknir á leikmanni okkar, Federico Valverde, og hefur hann verið greindur með höfuðáverka. Valverde er heima við góða líðan og mun þurfa að hvílast næstu 10 til 14 daga, sem er í samræmi við læknisfræðilegar verkreglur fyrir greiningar sem þessar,“ segir í yfirlýsingu Madrídinga.
Þetta þýðir að Valverde mun ekki spila við Barcelona í El Clásico um helgina og gæti mögulega misst af deildarleiknum gegn botnliði Real Oviedo 14. maí næstkomandi.
Parte médico de Valverde.
— Real Madrid C.F. (@realmadrid) May 7, 2026



