Fotbolti.net
07.05.26 - 22:47
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Vítavarsla í uppbótartíma tryggði fimmta Meistaradeildarsætið

Augusto Batalla ver vítaspyrnuna

Augusto Batalla ver vítaspyrnuna

Canon

Mynd: EPA

Spænska deildin fær fimm Meistaradeildarsæti í gegnum deildina á næstu leiktíð en sætið var tryggt í kvöld eftir 1-0 sigur Rayo Vallecano á Strasbourg í undanúrslitum Sambandsdeildarinnar í kvöld.
Spánn var nánast komið með sætið en vítaspyrnuvarsla Argentínumannsins Augusto Batalla frá Julio Enciso í uppbótartíma innsiglaði sætið.

Rayo var 1-0 yfir gegn Strasbourg er þeir frönsku fengu vítaspyrnu sem setti fimmta Meistaradeildarsætið í smá hættu og gat hleypt Þýskalandi inn í baráttuna um þetta sæti.

Því var þessi varsla Batalla ótrúlega mikilvæg fyrir Spán, en hún tryggði líka Atlético áfram í Meistaradeildina á næsta tímabili þar sem liðið getur ekki endað neðar en í 5. sæti.

Rayo er um leið komið í úrslit í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins. Frábært kvöld fyrir Rayo og Spán.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.