Fotbolti.net
07.06.16 - 22:17
Þorsteinn Haukur Harðarson
- Laugardalsvelli.

Freysi: Þú ert djöfulsins frekja!

Auglýsing
Freyr Alexandersson.

Freyr Alexandersson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Kvennaboltinn
\"Þá fer maður bara yfir það sem búið er að æfa í næstum því tvö ár. Það eru ákveðnar hreyfingar og sendingarferlar sem við viljum fara,\" sagði Freyr Alexandersson eftir 8-0 sigur gegn Makedóníu í kvöld þegar hann var spurður um hvernig hálfleiksræðan hafi verið í stöðunni 6-0.
\"Við töluðum líka um að mögulega gætum við náð einhverjum metum hérna ef við vildum. Svo fórum við að vera aðeins of góðar við okkur og þetta datt ekki alveg fyrir okkur í seinni hálfleiknum. Það er skrítið að spila svona leiki.\"



\"Við vorum að spila flottan og erfiðan leik fyrir örfáum dögum svo ég er ánægður með liðið.\"



Ísland skoraði sex mörk í fyrri hálfleiknum og bætti tveimur mörkum við í þeim seinni. Við spurðum Frey hvort maður væri orðinn frekar ef maður segði að Ísland hafi \"bara\" skorað tvö í seinni hálfleik. \"Jájá þú ert djöfulsins frekja bara,\" sagði Freyr léttur



Sætið á EM er ekki gulltryggt en liðið er komið langleiðina á móitið. \"Það er ýmislegt sem þarf að gerast. Einhverjir 3-4 leikir þurfa að fara á einhvern ótrúlegan hátt. Ég get alveg sagt það núna að það er ekki að fara að gerast, en ég má ekki setja (staðfest) við það fyrr en allt er orðið klárt tölfræðilega séð.\"



Þá segir hann að maður geti farið að panta ferðina. 



\"Ég skal endurgreiða þér ferðina ef við förum ekki.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.