Fotbolti.net
07.06.16 - 16:33
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Þjálfari með 40 ára reynslu tekur við Ítölum (Staðfest)

Þjálfari með 40 ára reynslu tekur við Ítölum (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Giampiero Ventura tekur við ítalska landsliðinu eftir EM í Frakklandi en þetta var staðfest í dag.

Ventura tekur við af Antonio Conte sem hættir sem landsliðsþjálfari eftir EM til að taka við Chelsea.

Ventura er 68 ára gamall en hann hefur frá því árið 2011 þjálfað Torino.

Þjálfaraferill Ventura hófst árið 1976 en síðan þá hefur hann þjálfað mikinn fjölda félaga.

Venezia, Lecce, Cagliari, Sampdoria, Udinese, Napoli, Messina Verona, Pisa og Bari eru á meðal félaga sem Ventura hefur þjálfað á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.