Fotbolti.net
07.06.16 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Totti tekur 25. tímabilið með Roma (Staðfest)

Totti tekur 25. tímabilið með Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Francesco Totti hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Roma en félagið staðfesti þetta í dag.
Totti mun því taka sitt 25. tímabil með aðalliði Roma á næsta tímabili.

Totti verður fertugur í september en hann spilaði sinn fyrsta leik með liðinu árið 1992.

Síðan þá hefur Totti skorað 248 mörk í 601 deildarleik með Rómverjum en hann er í gífurlegu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum félagsins.

Totti var mikið á bekknum á nýliðnu tímabili en hann átti góðar innkomur í leiki og skoraði mikilvæg mörk fyrir Roma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.