Fotbolti.net
07.06.20 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Líklegt byrjunarlið Fylkis í sumar

Fylkismenn enda í áttunda sæti samkvæmt spá Fótbolta.net.

Fylkismenn enda í áttunda sæti samkvæmt spá Fótbolta.net.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fótbolti.net spáir Fylki áttunda sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Fótbolti.net rýnir í dag í mögulegt byrjunarlið Fylkis í sumar en rúm vika er í fyrsta leik liðsins gegn Stjörnunni.
Samkeppni er um markmannsstöðuna en þar berjast Aron Snær Friðriksson og Arnar Darri Pétursson um stöðuna. Aron Snær var aðalmarkvörður í fyrra en hann meiddist um mitt mót og reynsluboltinn Stefán Logi Magnússon leysti hann þá af hólmi.

Ragnar Bragi Sveinsson verður í nýrri stöðu í sumar sem hægri bakvörður en hann er einnig nýr fyrirliði. Andrés Már Jóhannesson mun berjast við hann um stöðuna. Daði Ólafsson verður vinstri bakvörður en hann var stoðsendingahæstur í deildinni í fyrra.

Orri Sveinn Stefánsson og Ásgeir Eyþórsson verða miðverðir en Ari Leifsson er horfinn á braut. Aðstoðarþjálfarinn Ólafur Ingi Skúlason getur einnig spilað í hjarta varnarinnar en hann byrjar þó líklega á miðjunni með öðrum reynslubolta, Helga Val Daníelssyni. Ólafur Ingi hefur verið meiddur undanfarnar vikur en vonandi er fyrir Árbæinga að hann nái fyrsta leik eftir rúma viku.

Framarlega á miðjunni er Valdimar Þór Ingimundarson sem hefur vakið mikla athygli undanfarið ár. Sam Hewson getur spilaði bæði á miðjunni og kantinum og hinn ungi Birkir Eyþórsson gæti einnig spilað á miðjunni.

Djair Parfitt-Williams er spennandi kantamður sem kom til Fylkis í sumar en hinn ungi Þórður Gunnar Hafþórsson kom einnig til félagsins frá Vestra eftir að hafa verið valinn efnilegastur í 2. deildinni í fyrra. Arnór Borg Guðjohnsen er mögulega að koma til Fylkis frá Swansea og Nikulás Val Gunnarsson og Leonard Sigurðsson geta einnig spilað á kantinum.

Í framlínunni hafa Arnór Gauti Ragnarsson og Hákon Ingi Jónsson verið að keppa um byrjunarliðssæti. Geoffrey Castillion gæti hins vegar slegið þá báða út en hann gæti verið á leið aftur í Árbæinn á láni. Geoffrey skoraði tíu mörk í Pepsi Max-deildinni í fyrra og myndi styrkja lið Fylkis mikið ef hann kemur aftur til félagsins.

Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 8. sæti Fylkir/a>
Ólafur Ingi Skúlason.

Ólafur Ingi Skúlason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.