Fotbolti.net
07.06.20 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Líklegt byrjunarlið KA í sumar

Ásgeir Sigurgeirsson.

Ásgeir Sigurgeirsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fótbolti.net spáir KA sjöunda sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. KA-menn enduðu í 5. sæti í fyrra eftir fínan endasprett en liðið var þó lengst af móts við kjallarann.

Fótbolti.net rýnir í dag í mögulegt byrjunarlið KA í sumar.


Reiknað er með því að Óli Stefán Flóventsson byrji nýtt tímabil með þriggja miðvarða kerfi, þrátt fyrir að betur hafi gengið í fyrra eftir að liðið fór í fjögurra manna vörn.

Í markinu er hinn ungi Aron Dagur Birnuson en hann missti af stórum hluta síðasta tímabils vegna meiðsla. KA er í góðum málum varðandi varamarkvörð með Kristijan Jajalo.

Haukur Heiðar Hauksson fór í aðgerð og ekki víst hvenær hann getur farið að spila aftur. Brynjar Ingi Bjarnason, Hallgrímur Jónasson og Mikkel Qvist eru í miðvarðalínunni. Hallgrímur er heill heilsu eftir að hafa ekki verið 100% í fyrra og það eru góðar fréttir fyrir KA. Qvist er ótrúlegur í löngum innköstum og það gæti reynst öflugt vopn fyrir KA í sumar.

Ívar Örn Árnason og Hrannar Björn Steingrímsson eru vængbakverðir. Á miðjunni eru svo Rodrigo Mateo sem KA fékk frá Grindavík og fyrirliðinn Almarr Ormarsson. Þar fyrir framan er stjörnuleikmaðurinn Hallgrímur Jónasson.

Elfar Árni Aðalsteinsson meiddist illa og verður ekkert með í sumar. Ásgeir Sigurgeirsson og hinn ungi Nökkvi Þeyr Þórisson eru fremstu menn en nígeríski sóknarmaðurinn Jibril Abubakar sem kom á láni Midtjylland er hugsaður í breiddina.

Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 7. sæti Fylkir
Almarr Ormarsson.

Almarr Ormarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.