Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   sun 07. júní 2026 12:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Forseti Como: Chiesa er of dýr
Mynd: EPA
Það hefur verið gríðarlegur uppgangur hjá Como undanfarin ár en liðið hefur komist upp úr B-deildinni og í Meistaradeildina á rúmlega tveimur árum.

Félagið er að skoða markaðinn til að styrkja liðið fyrir átökin á næstu leiktíð. Federico Chiesa, leikmaður Liverpool, er að íhuga að yfirgefa félagið og Como hefur sýnt honum áhuga. Þá er Andrea Cambiaso, leikmaður Juventus, einnig á óskalistanum.

„Við erum að skoða marga leikmenn. Verðið á þessum tveimur er aðeins hærra en það sem við höfðum í huga," sagði Mirwan Suwarso, forseti félagsins.

Nico Paz hefur verið stórkostlegur hjá Como en Suwarso viðurkennir að boltinn sé hjá Real Madrid. Paz gekk til liðs við Como frá Real en spænska liðið er með forkaupsrétt á honum og hann hefur verið sterklega orðaður við Real.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner