Palli Árna: Erum búin að lenda í mörgum áföllum
Auglýsing

Mynd: Fjölnir

Mynd: Fjölnir

<i>„Mér fannst leikurinn spilast vel að flestu leyti fyrir okkur, fyrir utan það að við fáum eitt mark á okkur og skorum ekki neitt,\"</i> sagði Páll Árnason, þjálfari Fjölnis eftir tap gegn Fylki í Inkasso-deild kvenna í gærkvöld.
„Fylkir er náttúrulega með gríðarlega sterkt lið. Varnarlega gengur þetta nokkurn veginn upp, við fáum kjánamark úr útsparki hjá okkur, fáum færi til að jafna, þær fá líka færi til að bæta við. Fylkir er líklega með besta liðið og ég er nokkuð sáttur með frammistöðuna.\"
Fjölnir er í næst neðsta sæti deildarinnar með þrjú stig.
„Við erum búin að lenda í mörgum áföllum. Vissulega eru vonbrigði að vera með þrjú stig en við tókum góðan fund eftir seinasta leik og núllstilltum okkur. Við sjáum hverju það skilar þegar kemur að næsta leik.\"
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.