Fotbolti.net
16.07.26 - 18:57
Brynjar Ingi Erluson

Skoða frammistöðu Tuchel eftir HM - „Verðum að gera það til að fá stóra vinninginn“

Thomas Tuchel

Thomas Tuchel

Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, er að búast við því að stýra liðinu á Evrópumótinu eftir tvö ár.
Sambandið stendur með Tuchel sem fær gagnrýni úr öllum áttum
TENGT EFNI

Sambandið stendur með Tuchel sem fær gagnrýni úr öllum áttum

Tuchel og lærisveinar hans misstu af sæti í úrslitaleik heimsmeistaramótsins eftir sárt 2-1 tap gegn Argentínu í undanúrslitunum í gær.

Anthony Gordon kom Englendingum yfir snemma í síðari hálfleik, en liðið hörfaði í kjölfarið langt aftur og reyndi að verja forskotið. Það gekk ekki eftir því Argentínumenn skoruðu tvívegis undir lok leiks og tryggðu sér sæti í úrslitum HM annað mótið í röð.

Tuchel hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir að pakka í vörn í stöðunni 1-0. Hann segir það þó aldrei hafa verið ætlunina og hafi hvatt leikmenn sína til að halda áfram að sækja og stíga framar á völlinn.

Skilaboðin voru hins vegar ekki sérlega skýr þegar hann tók markaskorarann Gordon af velli á 72. mínútu og setti miðvörðinn Ezri Konsa inn á í hans stað. England færði sig þá yfir í fimm manna varnarlínu, varð sífellt passífara og hélt aðeins boltanum í tólf prósent leiktímans frá marki Gordon þar til Argentína skoraði sigurmarkið.

Tuchel var spurður eftir leik hvort hann vildi halda áfram með liðið fram að Evrópumótinu eftir tvö ár.

„Já, hundrað prósent. Það er enn margt sem við getum bætt og ég tek það verkefni glaður að mér. Ég hef elskað hvern einasta dag á heimsmeistaramótinu.“

„Ég sagði eftir sigurinn gegn Noregi í átta liða úrslitunum að það væri munur á því sem ég sé frá leikmönnunum á æfingum og því sem þeir sýna í leikjum. Við getum verið ákveðnari með boltann og sýnt hversu góðir fótboltamenn við erum.“

„Þetta býr enn í liðinu. Ég sé það á æfingum og hef einnig séð það á heimsmeistaramótinu. Mér finnst enn vera eitt þrep sem við þurfum að komast upp um. Við verðum að taka það skref til að taka stóra vinninginn,“ sagði Tuchel.

Enska sambandið mun fara yfir frammistöðu Tuchel og liðsins eftir mótið, en hann nýtur enn stuðnings innan sambandsins og er samningsbundinn fram yfir Evrópumótið.

Þar er horft til þess að England hafi komist í undanúrslit þrátt fyrir erfiða leið í gegnum mótið. Riðillinn þótti sterkari en þeir sem liðið fékk á stórmótum undir stjórn Gareth Southgate og þá reyndu mikil ferðalög og hiti verulega á hópinn. Englendingar fóru í sitt þrettánda flug á mótinu fyrir leikinn gegn Argentínu.

Allt bendir því til þess að Tuchel fái annað tækifæri til að leiða Englendinga á stórmót eftir tvö ár þar sem þeir verða á heimavelli.

Heimsmeistaramótinu er að vísu ekki lokið fyrir Englendinga sem spilað við Frakka um bronsið á laugardag.
Skoða frammistöðu Tuchel eftir HM - „Verðum að gera það til að fá stóra vinninginn“
Canon

Mynd: EPA

Skoða frammistöðu Tuchel eftir HM - „Verðum að gera það til að fá stóra vinninginn“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.