Fotbolti.net
16.07.26 - 14:20
Elvar Geir Magnússon

Szoboszlai að framlengja við Liverpool

Dominik Szoboszlai.

Dominik Szoboszlai.

Canon

Mynd: EPA

Dominik Szoboszlai, miðjumaður Liverpool, er nálægt því að skrifa undir nýjan langtímasamning á Anfield.

Þessi 25 ára ungverski landsliðsmaður á tvö ár eftir af núgildandi samningi og hefur verið í viðræðum um nýjan samning síðustu mánuði.
Szoboszlai kom til Liverpool frá RB Leipzig á 60 milljónir punda 2023 og var besti leikmaður Liverpool á síðasta tímabili, skoraði 13 mörk og átti 12 stoðsendingar.

Í febrúar sagði Mohamed Salah að Szoboszlai væri einn af leikmönnum heims. Talið er líklegt að sá ungverski verði gerður að varafyrirliða þegar hann hefur skrifað undir nýjan samning.

Szoboszlai og félagar í Liverpool eru á leið til Bandaríkjanna í æfingaferð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.