Byrjunarlið Vestra í sögulegum leik: Tveir fæddir 2009

Albert Ingi er fæddur árið 2009 og er í byrjunarliðinu í dag.

Mynd: Vestri

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Albert Ingi er fæddur árið 2009 og er í byrjunarliðinu í dag.

Mynd: Vestri
Klukkan 20:00 hefst fyrsti heimaleikur í Evrópusögu Vestra þegar leikur liðsins gegn Qarabag í forkeppni Evrópudeildarinnar verður flautaður á. Leikurinn fer fram í Laugardal, á AVIS vellinum, heimavelli Þróttar.
Um er að ræða seinni leik liðanna í 1. umferð forkeppninnar í Evrópudeildinni. Fyrri leikurinn í Aserbaísjan endaði með 3-0 sigri Qarabag. Sigurliðið í einvíginu fer áfram í 2. umferðina í forkeppni Evrópudeildarinnar en tapliðið mætir lettneska liðinu RFS í 2. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni.
Leikurinn er í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net og í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.

TENGT EFNI
Söguleg stund í Laugardalnum - „Var ekki í mínum villtustu draumum“
Daniel Badu, þjálfari Vestra, gerir sjö breytingar á liðinu sem byrjaði leikinn í Aserbaísjan. Þeir Marvin Darri, Elmar Atli, Edson og Sergine Fall halda sæti sínu.
Fimm leikmenn sem eru uppaldir í Vestra eru í byrjunarliðinu í dag. Það eru þeir Elmar Atli, Albert Ingi, Guðmundur Páll, Marinó Steinar og Birkir Eydal. Þeir Marinó Steinar og Albert Ingi eru fæddir 2009.

Byrjunarlið Vestri
Marvin Darri Steinarsson, Edson Eduardo Dias Gomes, Jacob Stensson, Johannes Selvén, Albert Ingi Jóhannsson, Birkir Eydal, Marinó Steinar Hagbarðsson, Emmanuel Agyeman Duah, Elmar Atli Garðarsson (fyrirliði), Guðmundur Páll Einarsson, Sergine Modou Fall
Byrjunarlið Qarabag
Mateusz Kochalski, Matheus Silva, Bence Várkonyi, Bruno Langa, Jaly Mouaddib, Marko Jankovic, Abdellah Zoubir, Zakaria Sawo, Kady, Pedro Bicalho, Badavi Hüseynov

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson