Vængir Júpíters 0 - 0 Augnablik
Vængir Júpíters mættu Augnabliki í eina leik kvöldsins í 3. deild karla.
Hvorugu liði tókst að skora í leiknum og urðu lokatölur því 0-0, markalaust jafntefli.
Vængirnir náðu þar með í fyrsta stigið sitt í sumar og eru með eitt stig eftir fjórar umferðir. Augnablik er með fimm stig.
Vængirnir eiga næst útileik gegn Einherja sunnudaginn 12. júlí.
Athugasemdir