Brotist var inn á heimili Franck Ribery, leikmanns Fiorentina á Ítalíu, í gær. Ribery var að spila leik gegn Parma sem Fiorentina vann 2-1.
Ribery fór meiddur af velli í síðari hálfleik en þegar hann kom heim eftir leik var búið að brjótast inn og ýmsum hlutum stolið, þar á meðal töskum og skartgripum.
Ribery fór meiddur af velli í síðari hálfleik en þegar hann kom heim eftir leik var búið að brjótast inn og ýmsum hlutum stolið, þar á meðal töskum og skartgripum.
Ribery setti inn myndband á samskiptamiðla þar sem hann sýndi í hvernig ástandi heimili hans var þegar hann kom heim.
„Eftir leikinn gegn Parma, þá fór ég heim. Þetta „heimili" á Ítalíu, land þar sem ég ákvað að halda áfram með knattspyrnuferil minn eftir mörg falleg ár í Munchen."
„Þetta er það sem beið mín...töskur stolnar og skartgripir en ekkert bráðnauðsynlegt. Ég þakka guði fyrir að konan mín og börn voru örugg í Munchen, en hvernig getum við treyst umhverfi okkar í dag?" skrifaði Ribery.
Athugasemdir