Fotbolti.net
07.08.15 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Alberto Aquilani til Sporting (Staðfest)

Alberto Aquilani til Sporting (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski miðjumaðurinn Alberto Aquilani er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við portúgalska félagið Sporting CP.

Aquilani er 31 árs gamall og fær um 27 þúsund pund í vikulaun hjá Sporting, sem endaði í þriðja sæti portúgölsku deildarinnar á síðasta tímabili.
Aquilani ólst upp hjá Roma en var keyptur til Liverpool fyrir um 14 milljónir punda árið 2009. Hjá Liverpool tókst Ítalanum aldrei að sanna sig enda hrjáður af meiðslum og var lánaður til Juventus og Milan í kjölfarið, áður en hann fór til Fiorentina árið 2012.

Aquilani fékk einnig tilboð frá Sampdoria í ítölsku deildinni og nokkur tilboð úr bandarísku MLS deildinni en leist best á Sporting.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.