07.08.15 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Newcastle kaupir Ivan Toney (Staðfest)

Toney, sem er sterkur í loftinu, hefur gert 11 mörk í 53 deildarleikjum.

Mynd: Getty Images

Newcastle United hefur fest kaup á Ivan Toney frá D-deildarfélaginu Northampton Town.
Toney er 19 ára gamall sóknarmaður sem ólst upp hjá Northampton og hefur gert 13 mörk í 60 leikjum með aðalliðinu þar sem hann byrjaði að spila aðeins 16 ára gamall.

„Við erum mjög hrifnir af Ivan. Hann er mjög góður leikmaður með frábæran karakter og hefur allt sem þarf til að eiga bjarta framtíð hjá félaginu,\" sagði Peter Beardsley, sem er yfir unglingastarfi Newcastle.
Toney, sem var orðaður við Crystal Palace fyrr í sumar, er fimmti leikmaðurinn sem Newcastle fær til liðs við sig í sumar. Kaupverð er ekki uppgefið.

Heimild: BBC