Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 07. september 2019 15:15
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild kvenna: Arna Ósk tryggði þrjú stig fyrir Sindra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sindri 1 - 0 Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F.
1-0 Arna Ósk Arnarsdóttir ('53)

Sindri tók á móti sameinuðu liði Fjarðabyggðar/Hattar/Leiknis F. í 2. deild kvenna.

Það munaði aðeins einu stigi á liðunum fyrir leikinn en þau eru í harðri baráttu um annað sæti deildarinnar.

Arna Ósk Arnarsdóttir gerði eina mark leiksins í dag og stóð Sindri uppi sem sigurvegari, 1-0.

Þetta var síðasta umferð deildartímabilsins fyrir bæði lið og er Sindri í öðru sæti sem stendur, með 21 stig.

Sindri getur þó misst annað sætið á morgun þegar Grótta tekur á móti Álftanesi. Seltirningar geta endurheimt annað sætið og farið upp í Inkasso-deildina.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner