banner
   lau 07. september 2019 15:18
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Hvíti riddarinn lagði Elliða
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Hvíti riddarinn 2 - 1 Elliði
0-1 Óðinn Arnarsson ('10)
1-1 illugi Þór Gunnarsson ('55)
2-1 Eiríkur Þór Bjarkason ('63)

Hvíti riddarinn er kominn skrefi nær 3. deildinni eftir 2-1 sigur á Elliða í úrslitaleik úrslitakeppni 4. deildar.

Óðinn Arnarsson gerði eina mark fyrri hálfleiksins er liðin mættust í Mosfellsbæ og leiddu Árbæingar því 0-1.

Illugi Þór Gunnarsson jafnaði í seinni hálfleik og gerði Eiríkur Þór Bjarkason sigurmarkið á 63. mínútu.

Liðin mætast í Árbænum næsta miðvikudag og kemur þá í ljós hverjir fara upp um deild.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner