Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 07. september 2019 14:35
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Íslendingavaktin 
Rúnar Alex átti eina af vörslum mánaðarins í Frakklandi
Mynd: Getty Images
Rúnar Alex Rúnarsson er markvörður Dijon sem leikur í efstu deild í Frakklandi.

Hann vann sér inn byrjunarliðssæti með frammistöðum sínum í fyrra og má ekkert gefa eftir í ár til að halda sætinu.

Í hverjum mánuði er valið bestu markvörslurnar í franska boltanum og átti Rúnar Alex eina glæsilega vörslu í ágúst.

Hann hefur farið vel af stað þrátt fyrir slakt gengi Dijon og er búinn að verja 25 skottilraunir í þremur fyrstu leikjunum.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndband með öllum bestu vörslunum. Rúnar kemur fyrir eftir um 50 sekúndur.


Athugasemdir
banner
banner
banner