Fotbolti.net
07.09.26 - 22:59
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Óskar Smári: Það er bara fokking kjaftæði

Auglýsing
Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar

Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
„Já ég er bara brjálaður,“ sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 1-2 tap gegn Víkingum í Miðgarði í dag. 
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 2 Víkingur R.

„Að við skulum tapa þessum leik hérna í dag er alveg ótrúlegt og ég er bara brjálaður að við töpum hérna í dag,“ hélt hann svo áfram.

Aðspurður hvar leikurinn fór frá þeim segir hann:

„Slakur fyrri hálfleikur, orkulitlar. Mjög einfalt leikplan hjá Víkingum sem hefur veirð undanfarið og við bregðumst illa við það, dílum illa við löngu boltana, dílum illa við aðra boltana. Inn á milli ágætis spilakaflar en inn á milli allt of lítið af gæðum á boltann og svo þegar við náum öllum tökum á þessum leik hérna í seinni hálfleik og erum með þær bara, búnar að setja þær alveg niður að þá að fá eina skyndisókn á sig, bara mjög svekkjandi. Annan leikinn í röð þar sem við erum að fá á okkur mark í lokinn og klárum ekki fókus út leikinn og það er bara drullufúlt.“

Stjörnukonur hafa verið á vondu skriði undanfarið og hafa aðeins unnið einn leik í síðustu sjö. Þær enda mótið fyrir tvískiptingu í fjórða sæti og hafa lítið nema stoltið að spila fyrir. Hefur það einhver áhrif á spilamennskuna?

„Það er að öllu að spila fyrir okkar. Við vorum með markmið og hérna í dag fóru þau markmið út um gluggann. Það var fyrir öllu að spila fyrir okkur hér í dag. Þannig ég get ekki kennt því um að við séum ekki að spila upp á neitt. VIð erum að spila fótboltaleik og þegar þú spilar fótboltaleik þá gerir þú allt til að vinna hann. Ég er bara þannig gerður að ég fer í alla leiki til að vinna þá og stelpurnar vita það. Ef að fólk ætlar að afsaka það af því við erum ekki að spila upp á neitt, það er bara fokking kjaftæði, geta bara farið eitthvað annað og spilað þar. Ég ber það mikla virðingu fyrir þessari deild að ég ætlaði að vinna Víkingana hér í dag þrátt fyrir það að þær séu með bakið upp við vegg og eru í fallbaráttu og við búnar að hellast úr lestinni í toppbaráttunni. Ég ætla ekki að taka undir orð þín þegar þú segir að við höfum ekki fyrir neitt að spila.“

Fanney Lísa, leikmaður Stjörnunnar, var ekki í leikmannahópnum í dag. Einhverjar sögur hafa verið á flugi varðandi það að hún sé að fara í atvinnumennsku, er eitthvað til í því?

„Hún er ekki með í dag því að hún er að fara að vera atvinnumaður, já það er rétt hjá þér. Það er bara geggjað, bara ofboðslega stoltur og Stjarnan bara stolt af henni. Fanney Lísa er ofboðslega hæfileikaríkur leikmaður, skemmtikraftur, söknum hennar mikið í dag.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.