07.09.26 - 22:15
Víðir Sigurðsson
Víðir Sig: Söguleg mörk, félagsmet hjá Þrótti og fimm náðu stórum áföngum

Þriðja viðureign Breiðabliks og FH í Bestu deildinni í ár fer fram á Kópavogsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þriðja viðureign Breiðabliks og FH í Bestu deildinni í ár fer fram á Kópavogsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik verður á heimavelli gegn FH í lokaumferð Bestu deildar kvenna í haust en það gæti orðið hreinn úrslitaleikur liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Víkingur og Þór/KA þurfa að spila tvo leiki af þremur á útivöllum á lokasprettinum í neðri hluta deildarinnar en þetta komst allt á hreint þegar átjándu umferð deildarinnar lauk í kvöld.
Lillý Rut Hlynsdóttir skoraði sögulegt mark fyrir Val á dögunum og Sierra Marie Lelii skoraði sögulegt mark fyrir Þrótt í kvöld. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir er búin að setja nýtt félagsmet hjá Þrótti og þær Karitas Tómasdóttir, Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir, Kristrún Ýr Holm og Sæunn Björnsdóttir náðu allar stórum áföngum á ferlinum í 16., 17. og 18. umferð Bestu deildar kvenna, en sagt er frá þeim síðar í greininni.
Úrslit í 16.-18. umferð:
20.8. Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0
20.8. Stjarnan - Breiðablik 2-0
21.8. ÍBV - Þróttur 1-2
21.8. FH - Víkingur 0-1
21.8. Þór/KA - Valur 0-1
29.8. Fram - Stjarnan 3-2
29.8. Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0
29.8. Þróttur - Þór/KA 0-0
29.8. Breiðablik - ÍBV 1-2
30.8. Valur - FH 2-2
5.9. ÍBV - Fram 2-3
6.9. FH - Þór/KA 2-1
6.9. Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4
7.9. Stjarnan - Víkingur 1-2
7.9. Þróttur - Breiðablik 1-1
Staðan:
Efri hluti: Breiðablik 37, FH 37, ÍBV 27, Stjarnan 26, Þróttur 23, Grindavík/Njarðvík 22.
Neðri hluti: Fram 22, Valur 20, Víkingur 20, Þór/KA 19.
Breiðablik, FH og ÍBV fá þrjá heimaleiki hvert lið en Stjarnan, Þróttur og Grindavík/Njarðvík tvo heimaleiki hvert í efri hluta Bestu deildar kvenna en keppni þar hefst um aðra helgi. Leiki liðanna í heild sinni má sjá neðst í greininni.