Fotbolti.net
05.09.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mourinho gaf hetju Betis sitt fyrsta tækifæri hjá Tottenham

Mourinho gaf hetju Betis sitt fyrsta tækifæri hjá Tottenham
Canon

Mynd: EPA

Írski sóknarmaðurinn Troy Parrott var hetja Real Betis þegar liðið vann Real Madrid í ótrúlega dramatískum sigri í gær.

Parrott skoraði eina markið þegar hann var fyrstur að átta sig eftir að Thibaut Courtois varði boltann út í teiginn. Kylian Mbappe fékk tækifæri til að jafna metin í uppbótatíma en klikkaði á vítaspyrnu.
Parrott er uppalinn hjá Tottenham en hann spilaði sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni árið 2019 en það var enginn annar en Jose Mourinho, núverandi stjóri Real Madrid, sem var þá stjóri Tottenham.

Hann spilaði fjóra leiki það tímabil en var mikið á láni í kjölfarið. Hann var seldur til AZ Alkmaar árið 2024 en gekk til liðs við Betis í sumar. Þetta var fyrsta markið hans fyrir spænska liðið.

Parrott er írskur landsliðsmaður en þar spilar hann undir stjórn Heimis Hallgrímssonar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.