Fotbolti.net
Öll spjót beinast að Mike Dean - Umdeildustu atvikin tekin saman

05.09.26

Öll spjót beinast að Mike Dean - Umdeildustu atvikin tekin saman

ÍVAR BJÖRGVINSSON

Fyrrum knattspyrnudómarinn Mike Dean hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga eftir hluti sem hann lét út úr sér falla í hlaðvarpi sem enginn annar en Jamie Vardy stjórnar. Þar fór hann um víðan völl en það sem vakti helst athygli er það hvernig hann lýsti því að hann, ásamt öðrum ónafngreindum dómurum, léku sér að alls konar þrautum á meðan þeir dæmdu leiki í ensku úrvalsdeildinni. Hann tók fram að hann hafi viljandi reynt að standa eins lengi inni í miðjuhringnum og hann kæmist upp með og einnig reynt að komast sem lengst af án þess að flauta í flautu sína.

Þetta dreifðist skiljanlega eins og eldur um sinu enda er þetta verulega ófagmannlegt en margir hafa nú spurt sig hvaða aðra, og jafnvel töluvert alvarlegri, hluti lék hann sér einnig að á hans 22 ára ferli sem dómari í ensku úrvalsdeildinni.

Mike Dean er sá dómari sem hefur dæmt flesta leiki í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en margir muna eftir því hvernig hann var á fótboltavellinum, þar sem hann var litríkur karakter sem sýndi gjarnan mikla tilburði í dómum sínum, ásamt því að taka reglulega upp á því að sprella í leikmönnunum. Því hefur Fótbolti.net tekið saman umdeildustu dóma eða atvik sem Mike Dean kom að, en hver og einn verður að dæma um hvort um er að ræða rétta ákvörðun, mistök eða eitthvað allt annað.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.